🇮🇸 Fullveldisdagurinn

Fullveldisdagurinn – 1. desember er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918 tóku gildi milli Íslands og Danmerkur svokölluð Sambandslög sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi sínu við Danmörku. Í þeim kom fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki.

Dagurinn varð smám saman að almennum Þjóðhátíðardegi fram að Lýðveldistíma en þá var hann var færður til 17. júní þótt sjaldnast væri mikið tilstand viðhaft ólíkt því sem seinna meir varð þann 17. júní eins og við þekkjum í dag.

Íslenski fáninn í núverandi mynd var í fyrsta sinn dreginn að húni sem fullgildur Þjóðfáni Íslands þennan dag 1918 og varð einn af Opinberum fánadögum lýðveldisins með forsetatilskipun árið 1944.

▶︎ Nánar um Fullveldisdaginn – 1. desember á Íslenska Almanaksvefnum

▶︎ Nánar um Opinbera Íslenska fánadaga á Íslenska Almanaksvefnum

▶︎ Nánar um Þjóðhátíðardaginn – 17. júní á Íslenska Almanaksvefnum

  • 00

    days

  • 00

    hours

  • 00

    minutes

  • 00

    seconds

Date

01. - 02. des - 2020

Time

All Day