Síðustu ár hefur verið unnið markvisst af því í FAS að breyta móttöku nýrra nemenda. Í ár má segja að lokaskrefið hafi verið stigið og það sem áður kallaðist busavígsla heitir nú nýnemadagur.
Nemendaráð og hópur eldri nemenda sáu um að skipuleggja leiki þar sem eldri nemendum og nýnemum var blandað saman í lið og aðal markmiðið var að hafa gaman saman. Hvert lið hafði sérstakan lit og áttu liðin að leysa ýmsar þrautir og safna með því stigum. Sumar þrautirnar verða að teljast nokkuð óvenjulegar svo sem að lyfta ferðamanni eða að finna þjóðþekktan einstakling og taka mynd af hópnum með honum. Myndirnar voru settar á Instagram og er hægt að skoða þær á heimasíðu skólans á þessari slóð. Að leik loknum var boðið upp á grillaða hamborgara og nýnemum síðan afhentar rósir til að bjóða þá velkomna í skólann.
Leikurinn tókst ljómandi vel og ekki annað að sjá að allir hafi skemmt sér vel. Það verður síðan tilkynnt hvaða lið bar sigur úr býtum á nýnemaballi í næstu viku.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hóp nýnema í FAS með forseta og varaforseta nemendafélagsins. Þó er vert að geta þess að í dag vantaði allmarga nýnema sem voru fjarverandi af ýmsum ástæðum.
Skiptibókamarkaður hjá Menningarmiðstöðinni
Það getur verið nokkur kostnaður í því að kaupa bækur og margir eiga námsbækur sem þeir þurfa ekki að nota lengur. Menningarmiðstöð Hornafjarðar stendur fyrir skiptibókamarkaði á bókasafninu þar sem hægt er að koma með slíkar bækur. Nánari upplýsingar er að finna á...