Verkmenntaskóli Austurlands bauð nemendum úr FAS og ME í heimsókn á öskudag. Þar var brugðið á leik og keppt í ýmsum greinum auk þess sem færi gafst til að skoða húsnæði skólans.
DSC01894
 
Vinirnir Elvar Bragi og Viktor létu sig að sjálfsögðu ekki vanta.


Við komuna austur var öllum boðið í mat.


DSC01896
DSC01897
 
Móttökurnar voru frábærar og allir fengu nóg að borða.


Þessir ungu menn mættu á svæðið og spiluðu fyrir gestina.


DSC01899
DSC01901
 
Eftir hádegi mættu allir í íþróttahúsið og skemmtu sér fram eftir degi við ýmsa leiki.


Einn liðurinn í boðhlaupinu var að setja blýant í flösku. Finnur klikkaði ekki.


DSC01907
DSC01911
 
Brynjar Freyr varð að vonum glaður að hitta sveitunga sína.


Hluti nemenda úr FAS fylgist hér með spurningakeppni.


DSC01917
DSC01920
 
Í liði FAS voru Siggi Óskar, Elvar Snorrason og Finnur Smári.


Í lokin var öllum boðið í pizzuveislu í Egilsbúð.


DSC01924
DSC01925
 
Allir átu og drukku eins og þeir gátu.


Heimferðin tók þó aðeins lengri tíma en var áætlað því rútan bakkaði út af eftir að bílstjórinn villtist í Reyðarfirði.


DSC01929