|
| |
|
|
| Hvað skyldum við eiginlega vera búin að keyra oft fram hjá Dyrhólaey? Alla veganna stoppuðum við þar í fyrsta skipti og urðum ekki fyrir vonbrigðum. |
|
|
|
Skyldi þessi klettur vera tröllkarl í álögum?
|
 |
|
|
| |
|
|
| Vinsamlegur túristi var svo vinsamlegur að taka þessa fjölskyldumynd - sandströndin liggur til vesturs. |
|
|
|
|
|
|
Útsýnið í allar áttir er frábært frá Dyrhólaey. Hér er horft til norðurs. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Gatkletturinn þekkti var á sínum stað og alltaf jafn flottur. Aðrir klettar eru eins og skrímsli í sjónum. |
|
|
|
|
|
|
| Horft til austurs - Reynisdrangar í fjarska.
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Öxarárfoss á Þingvöllum er alltaf jafn fallegur. |
|
|
|
|
|
|
| Hafdís Lára á labbi eftir Almannagjá.
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Frá Þingvöllum fórum við yfir Uxahryggi og Kaldadal yfir í Borgarfjörð. Falleg leið í góðu veðri. Hér skartar Skjaldbreið sínu fegursta - en hún er ein flottasta dyngja á Íslandi |
|
|
|
|
|
|
Hér sést á Þórisjökul sem er framanvið Langjökul að suðvestanverðu. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
|
Á Kaldadal rákumst við á þessa myndarlegu vörðu - það er víst síður að henda steini í vörðuna til að allt gangi vel. |
|
|
|
|
|
|
Við gistum í Húsafelli í nokkrar nætur enda var veðrið þar frábært. Það má með sanni segja að að þar hafi verið þröng á þingi. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Elín og Krissi voru með okkur í Húsafelli. Það var mjög gaman að njóta veðurblíðunnar með þeim. |
|
|
|
|
|
|
"Upp undir Eiríksjökli..." Þarna er hann blessaður í öllu sínu veldi.
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Í Hallmundarhrauni er fullt af hellum, þar á meðal þessi sem heitir Íshellir. Hann ber nafn með rentu; kaldur, dimmur og djúpur. |
|
|
|
|
|
|
| Hafdís Lára rétt hjá Surtshelli. Þarna var búið að setja grind yfir eina gjótuna.
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Það væri nærri því hægt að búa til póstkort úr þessari mynd úr Borgarfirðinum.
|
|
|
|
|
|
|
Barnafossar renna undan áðurnefndu Hallmundarhrauni í Hvítá. Alltaf jafn fallegir. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Safnið á Akranesi er mjög skemmtilegt - þar er m.a. hægt að skoða gamla báta. |
|
|
|
|
|
|
Einar sprangar á "bryggjunni" - Akrafjall í baksýn.
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Það er hægt að sulla í sjónum á Langasandi - þar voru nokkrir krakkar sem undu hag sínum vel. |
|
|
|
|
|
|
Já, það var greinilega skemmtilegt þarna. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Einar ásamt móður sinni, bróður og mágkonu í Elínarlundi. |
|
|
|
|
|
|
Elínarlundur er fyrir ofan Hafnarfjörð - þar hefur föðurfólkið hans Einars gróðursett mikið af tjrám. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Það var löngu búið að lofa ungfrúnni tívolíferð - þar eru klessubílarnir lang skemmtilegastir. Hafdís Lára ræður ekki enn almennilega við aksturinn og hefur því pabba sinn með. Honum finnst dóttirin óttalegur glanni og liggur við að honum finnist stundum nóg um. |
|
|
|