Í byrjun júní fór fjölskyldan og Gísli Páll frændi í sumarhús á Spáni.
image001
 
Við hliðina á húsinu er sundlaug. Krakkarnir fóru oft á dag í laugina. Það var vinsælt að reyna að hoppa sem lengst út í.


Hafdís Lára á fullri ferð.


image002
image003
 
Frændsystkinin glöð á góðum degi.


Einn daginn fórum við í dýragarð. Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að skreppa á bak á fíl.


image004
image005
 
Í miðbæ Torrevieja hittum við þessa fínu hljómsveit.


Í miðbænum er Tívolí. Við fórum þangað nokkrum sinnum. Hér hafa Einar, Hafdís Lára og Gísli Páll fengið sér far með risaeðlu.


image006
image007
 
Hafdís Lára á hestbaki.


Langvinsælast var að keyra klessubílana.


image008
image009
 
Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að sitja í drottningarvagni.


Hafdís Lára sefur vært eftir eina Tívolíferðina. Þetta ljón fékk hún fyrr um kvöldið.


image010
image011
 
Veitingastaðurinn Patio Andaluz er ekta spænskur staður. Þar smökkuðum við m.a. froskalappir og strútssteik. Þjónarnir eru mjög skemmtilegir og skemmta krökkunum m.a. með því að hella upp í þá ávaxtasafa.


Gísla og Eydísi leiðist ekki söngur spænsku drengjanna.


image012
image013
 
Gísla Páli fannst þetta frábær staður. Hann keypti sér m.a.s. bol til minningar.


Auðvitað fórum við nokkrum sinnum á ströndina. Þar var nóg byggingarefni.


image014
image015
 
Einn daginn fórum við til Alicante og skoðuðum m.a. þetta gamla virki. Útsýnið þaðan var frábært.


Hafdís Lára situr á gamalli fallbyssu.


image016
image017
 
Fjölskyldan efst í virkinu.


Ekki fannst okkur vandað til bygginga, steyptar plötur og súlur og svo múrsteinar. Ekki gott að vita til þess að þarna geta orðið jarðskjálftar.


image018
image019
 
Seinni vikuna keyrðum við til Calpe að heimsækja Sæla og Eydísi. Kletturinn sem einkennir staðinn er flottur.


Í Calpe fórum við á frábæran kínverskan veitingastað.


image020
image021
 
Farskjótinn kvaddur á flugvellinum í Alicante.