|
Skriðufall vestan í Árnanesmúla - innst í Laxárdal í Nesjum Síðastliðið haust rigndi mjög mikið hér suðaustanlands eins og annars staðar á landinu. Landið hefur víða tekið nokkrum breytingum. Innst á Laxárdal í Nesjum féll stór skriða einhvern tímann í nóvember. Hér eru nokkrar myndir sem sýna umfang skriðunnar. Breidd skriðunnar eru tæpir 100 metrar á láglendi. |
|
![]() |
|
|
Horft upp í hlíðina - skriðufallið
byrjar í fáein hundruð metra hæð
|
|
![]() |
|
|
Hæð skriðunnar á láglendi
er 3 - 4 metrar
|
|
![]() |
|
|
Horft fram Laxárdalinn - fremst sést glitta
í Meðalfellið - fíni bíllinn okkar agnarsmár
|
|
![]() |
|
|
Skriðan hefur kastast tugi metra fram á aurana
- hér sést yfir í Hafradal
|
|