Skaftafell

 

Eina helgina í júlí drifum við okkur með tjaldvagninn í Skaftafell. Það höfðu margir Hornfirðingar fengið sömu hugmynd enda var veðrið gott. Þetta var frábær helgi.

Feðginin tilbúin í rölt upp að Skaftafellsjökli.
Það eru mjög góðar upplýsingar um allt í Skaftafelli og mikið er nú skemmtilegra að skoða landið þegar hægt er að sjá hvað hin ýmsu fjöll heita.

Á síðasta ári var gamla rafstöðin í Skaftafelli gerð upp. Hana er að finna í þessu skemmtilega húsi sem fellur svo vel inn í landslagið.

Á rölti í þjóðgarðinum - fyrir neðan brekkurnar sést í tjaldstæðið.


Heimasíða Hjördísar Efst á síðu