Upp úr miðjum júlí fóru þýðversk ættmenni að streyma til landsins. Tilefnið var silfurbrúðkaupsafmæli Kalla og Rósu. Það var ákveðið að bjóða fyrst til veislu í Kópavoginum og halda síðan í Brekkuskóg þar sem átti að dvelja í viku í sumarbústöðum. Þaðan voru svo fyrirhugaðar styttri ferðir enda margir áhugaverðir staðir í nágrenninu. Að sjálfsögðu létum við okkur ekki vanta og mamma og Konnsi voru einnig á svæðinu.
SANY0576
 
Þegar halda skal veislu í Viðihvamminum virðist vera hægt að lengja borðstofuborðið í það óendanlega. Allur undirbúningur var glæsilegur og maturinn frábær.


Í eftirrétt var þessi frábæra kaka - skorin saman af hjónakornunum líkt og fyrir 25 árum.


SANY0609
SANY0557
 
Hafdís Lára var spennt að hitta skyldfólkið sem hún hafði ekki séð í fimm ár. Hér er hún með ömmubróður sínum Óskari og konunni hans Ilse.


Eftir veisluna góðu var haldið í Brekkuskóg þar sem dvelja átti í eina viku. Í upphafi voru við tæplega 20 en fækkaði eftir því sem leið á vikuna. Það voru miklar matarbirgðir sem voru bornar í annan sumarbústaðinn en þar var alltaf borðað. Já það var líka nóg að gera í að vaska upp eftir allan þennan hóp.


SANY0623
SANY0626
 
Setið að snæðingi eitt kvöldið. Frá hægri: Silke, Ilse, Konnsi, Óskar, mamma og Kalli.


Við fórum með tjaldvagninn okkar og höfðum hann fyrir utan annan bústaðinn. Þar var stundum setið og spjallað.


SANY0613
SANY0620
 
Einar og Birte á góðri stundu. Einar tilbúinn með flugnanetið ef einhverjar flugur kæmu of nærri honum.


Einn daginn var ákveðið að skoða Gullfoss frá báðum hliðum. Á leiðinni þangað komum við hjá fossinum Faxa. Eins og á mörgum öðrum stöðum var þar ágætt tilefni til að taka mynd.


SANY0632
gamm
 
Allur hópurinn samankominn við Faxa.


Gullfoss eystra megin - Einar var skynsamur og gekk alltaf með flugnanet í vasanum. Það kom vel að notum þarna því það var ótrúlega mikið af mýi. Það er jafnvel hægt að greina flugurnar á þessari mynd.


SANY0645
SANY0647
 
Mikið eru þær sætar frænkurnar - Hafdís Lára og Heiða.


Það er miklu tignarlegra að horfa niður eftir Hvítá á eystri bakkanum.


SANY0652
SANY0656
 
Já, hér sést vel hvernig gljúfrin hafa grafist niður í árannar rás.



Frá eystri bakkanum - ótrúlega flottur - ekki satt.


SANY0648
SANY0662
 
Hefðbundið sjónarhorn - vestan megin við Hvíta.


Glæsilegar skvísur á öllum aldri.


SANY0665
SANY0677
 
Við Geysi á góðum degi - nærri því of mikil sól. En mikið eru frændsystkinin flott.


Hafdísi Láru leiðist ekki að sprella með Heiðu og Finni.


SANY0680
SANY0701
 
Það tilheyrir að skoða Skálholt þegar dvalið er á Suðurlandinu.


Það er alltaf jafnflott að skoða Brúarhlöð.


SANY0703
SANY0708
 
Hafdís Lára og Birte frænka hjá Hjálparfossi en þar er mjög fallegt stuðlaberg.


Við Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal er þetta litla bænhús - Kalli og Rósa á góðri stundu.


SANY0712
SANY0720
 
Þarna voru líka sætir og forvitnir kettlingar sem voru tilbúnir að sinna gestum.


Við mæðgur ásamt Svenju og Merle.


SANY0722
SANY0723
 
Amma Margot og Hafdís Lára.


Næst var haldið upp á hálendið og Sultartangavirkjun heimsótt. Hér sést vel frárennslisskurðurinn frá virkjuninni. Búrfell í baksýn.


SANY0725
SANY0727
 
Ofan á Sultartangavirkjuninni var langt að horfa niður á stöðvarhúsið og vatnið - Hafdís Lára tók að sér að passa Kalla frænda.


Einn af mörgum "drekkutímum" þar sem þess var notið að sitja úti í guðsgrænni náttúrunni og næra bæði sál og líkama.


SANY0731
SANY0743
 
Birte frænka mín kom með okkur Hafdísi Láru austur - við skruppum upp í Lón þar sem alltaf er jafn fallegt. Þessi mynd er tekin af ósk frænku minnar.


Í gilinu fyrir innan bústaðina í Stafafellsfjöllum eru víða ótrúlegar bergmyndanir - hér hefur Birte tyllt sér niður á grænleita flögusteina.


SANY0744