Páskafrí 2003

 

Þann 15. maí var haldið til Svíþjóðar. Við flugum til Arlanda og héldum þaðan til Uppsala þar sem Inga systir og hennar fjölskylda býr. Þetta var bara 5 daga ferð en við gerðum nú helling á þessum stutta tíma. Þetta var í alla staði hin fínasta ferð, eina sem má kvarta yfir er að það var fremur kalt. Það sést líka vel hvað gróðurinn var kominn skammt á veg. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr ferðinni.

Anna Vigdís og Hafdís Lára fyrir utan lestarstöðina í Uppsala
Í Stokkhólmi fórum við meðal annars á safn um Línu langsokk.
Hafdís Lára fékk þennan hest til minningar um ferðina.
Horft yfir hallargarðinn í Uppsala - 18. apríl.
Horft yfir Uppsala - stærsta kirkja Svíþjóðar í baksýn.

Fallbyssur eru til margra hluta nytsamlegar.

Það eru misjafnir siðirnir í landi hverju. Í Svíþjóð eru aðrir siðir í tenglsum við páska en við eigum að venjast. Þannig eru skírdagur og annar páskadagur "venjulegir" dagar þar sem fólk stundar sína vinnu eða sækir skóla. Á skírdag hafa krakkar þó þann sið að útbúa páskabréf, þ.e. teikna myndir og skrifa á þær páskakveðjur. Því næst setja stelpurnar á sig skuplu og svuntu og strákarnir fara í jakka og setja á sig hatt. Eftir að hafa málað sig í framan er haldið af stað í nærliggjandi hús og götur. Þeir sem eru heimsóttir fá að draga sér páskabréf en krakkarnir fá í staðinn gott í gogginn eða pening. Þetta fannst Hafdísi Láru alveg frábært.
Í eldhúsinu hjá Ingu. Systradæturnar eru kátar á svipinn eftir að hafa gengið í hús.
Á föstudaginn langa fórum við til "Gamla Uppsala". Þar eru yfir 1000 ára gamlar minjar um víkingabyggð. Hólarnir sem sjást í bakgrunni eru manngerðir haugar sem hafa að geyma grafir höfðingja. Inga og Krister sæl með sig.
Dæmigert landslag í Svíþjóð - tré og vatn
Hafdís Lára kát að klifra í bíl
ÁÁ kínverskum veitingastað
Frænkurnar glaðar með páskaeggin sín á páskadagsmorgni - Önnu Vigdísi fannst þetta fín tilbreyting frá pappaeggjunum sem eru fyllt með nammi
Anna Vigdís og Jóhann Skírnir
Komið að kveðjustund - að sinni alla veganna
Heimasíða Hjördísar Efst á síðu