Þegar við keyptum húsið
okkar var búið að smíða pall fyrir utan
sjónvarpsholið. Þetta er fínn pallur en
því miður er ekki hægt að nýta
hann nema fyrri part dags. Eftir kaffi nær sólin
ekki að skína þar.
Á vordögum var ákveðið að ráðast
í smíði á öðrum palli, sá
skyldi staðsettur vestan við húsið, nánar
tiltekið fyrir utan borðstofugluggann. Hákon yfirsmiður
var fenginn til stjórna framkvæmdum. Þetta
var auðvitað miklu meiri vinna en gert var ráð
fyrir. En nú þegar pallasmíði er nánast
lokið erum við alsæl með afraksturinn og pallurinn
hefur verið mikið nýttur.
Eins og sést fer litið fyrir myndum af frúnni.
Hún tók þó að sjálfsögðu
þátt í öllu saman.