Laugarvatn

 

1. ágúst fór fjölskyldan í sumarbústað hjá Vélstjórafélaginu á Laugarvatn og dvaldi þar í viku. Þetta var stórgóð ferð, veðrið var frábært allan tímann og við vorum dugleg að hitta fólk og skoða umhverfið. Aðstaðan á svæðinu er líka frábær. Þar er sundlaug, heitir pottar, gufa, minigolf, leiksvæði og flottar gönguleiðir.

"Snarlað" eftir sundlaugarferð með Gústu og Jóni.
Að sjálfsögðu var mikið grillað - hér er það Adda sem gætir að grillinu.
Hafdís Lára og Agnes (jafngamlar) léku sér mikið saman.
Á laugardagskvöldinu var "mini"-varðeldur - samt nóg til að kæta smáfólkið.
Heimsókn í Úthlíð - Hafdís Lára veiðir flugur úr heita pottinum

Heimsókn í Faxabúðir - Elín og Hafdís Lára hjá leið Dímonar (hundsins þeirra).

Elín og Krissi.
Fanney bjó til gómsætan búðing fyrir krakkana.
Geysistofa var skoðuð - það er alveg hægt að mæla með heimsókn þangað. Á neðri hæðinni er hægt að skoða margt úr jarðfræði Íslands og á efri hæðinni ýmislegt sem tengist búsetu landsins. Þar er líka fullt af uppstoppuðum dýrum. Þar á meðal þessi hreindýrskálfur sem Hafdís Lára heillaðist af.
Gullfoss klikkar aldrei - Hafdís Lára og Jón rétt hjá beljandi vatninu.
Hafdís Lára á leiksvæðinu.
ÁÞessi róla var alltaf vinsæl.
Heimasíða Hjördísar Efst á síðu