Þann 10. september var fjölskyldudagur hjá Ratsjárstofnun. Þetta árið var ákveðið að fara að skoða framkvæmdir við Kárahnjúka. Lagt var af stað um hálfátta að morgni og komið heim eftir um 16 tíma ferðalag.
Kárahnjúkar_0539
 
Fyrsti áfangastaður var Atlavík - þar er alltaf jafn flott.


Eftir að hafa skoðað sýninguna í Végarði var gangnamuninn í Fljótsdal skoðaður. Í Végarði bættust fleiri í hópinn en það voru starfsmenn frá Gunnólfsvíkurfjalli ásamt fjölskyldum.


Kárahnjúkar_0544
Kárahnjúkar_0543
 
Staldrað við á Sandfelli og horft yfir vinnusvæðið.


Vinnubúðir Landsvirkjunar en þar fékk hópurinn að borða.


Kárahnjúkar_0534
Kárahnjúkar_0533
 
Horft yfir vinnubúðirnar.


Hér vantar lítið á að stíflan nái upp að gljúfurbörmunum.


Kárahnjúkar_0562
Kárahnjúkar_0561
 
Frúin vel útbúin við Sandfell.


Hápunktur ferðarinnar var þegar Hafrahvammagljúfrið var skoðað. Mannskepnan er ósköp smá samanborið við þessa náttúrunnar smíð.


Kárahnjúkar_0560
Kárahnjúkar_0557
 
Gljúfrið er 160 metra djúpt þar sem það er dýpst. Þó langt sé niður að vatninu heyrðist vel í því þegar það beljaði fram hjá.


Aðalhetjurnar fóru fram á þessa klettasnös til að sjá betur. Frá þessu sjónarhorni virðist kletturinn vera að springa frá bergstálinu.

Kárahnjúkar_0565