Jöklamælingar við Heinbergsjökul 5. nóvember 2002

 

Eyjólfur Guðmundsson skólameistari hefur undanfarin ár séð um jökulsporðmælingar á Heinabergsjökli og Fláajökli. Niðurstöðurnar eru sendar til Jöklarannsóknarfélags Íslands.

Það er orðin fastur liður að nemendur í náttúrufræði 113 taki þátt í þessum mælingum. Núna er heppilegra að mæla Heinabergsjökul því að þeir punktar sem gengið er útfrá við mælingarnar eru ekki eins aðgengilegir og þeir voru eftir að nýr varnargarður var byggður við Fláajökul.

Þann 5. nóvember síðast liðinn var haldið að Heinabergsjökli. Hiti var rétt fyrir ofan frostmark, logn og nánast heiðskýrt. Með öðrum orðum hinar ákjósanlegustu aðstæður til að mæla jökla. Með í för voru 18 nemendur sem allir höfðu ákveðnu hlutverki að gegna, skólameistari og kennari áfangans.

Í eftirfarandi skýrslu eftir Eydísi Einarsdóttur má lesa meira af gangi mála.

 

Svipmyndir úr ferðinni

Eins og sést var veðrið fínt

 

Mælingarnar undirbúnar

 

Kvikmyndagengið spígsporaði um með ótal tæki og tól

 

Það er mikil nákvæmisvinna að reikna út gráðurnar

 

Það er ekki síður mikilvægt að mælistikan sé beint upp

 

Horft frá "kíkishóp" í átt að mælistiku

 

Á heimleið - þetta var greinilega mikil erfiðsvinna