Sumarblíða

 

Það var ekki fyrr en upp úr miðjum júlí að það fóru að koma virkilegir góðviðrisdagar hér á suðaustur horninu. Það er oftast gaman að skoða nágrennið en miklu skemmtilegra þegar veðrið er gott. Útsýnið verður svo miklu betra, það er hægt að spranga um léttklæddur eða jafnvel sulla í sjónum.

Það er alltaf gaman að skreppa upp á Meðalfellið - Hornið í baksýn
Horft niður eftir farvegi Laxár - ættaróðalið á hægri hönd
Sólin brosir framan í göngugarpana.
Í gilinu fyrir innan Ketillaugarfjall - Krossbæjartindur í baksýn
Í gilinu eru stórir og miklir berggangar - Hafdís Lára hvílir lúin bein. Þennan daginn fór hitinn yfir 24°C en það var örugglega miklu heitara í gilinu.

Gísli Páll hjálpar frænku sinni að troða buxunum ofan í stígvélin

Sullað í fjörunni við Hornafjarðarós - Hornið í baksýn
Heimasíða Hjördísar Efst á síðu