Síðasta dag námskeiðsins var farið í dagsferð til Dresden. Sú borg er ótrúlega falleg og öruggt að ég á eftir að fara þangað aftur. Þar eru stórkostlegar byggingar sem gaman er að skoða. Reyndar byrjaði ferðalagið ekki vel því sporvagninn sem stór hluti hópsins ætlaði að taka niður á lestarstöð kom ekki og því þurfti að þramma þangað - sem sagt hressandi morgunganga.
 
 

SANY0200

Anke og Anette tóku brosandi á móti hópnum í morgunsárið.

Fyrst var farið til Pillnitz sem er glæsileg höll sem er staðsett á bökkum Elbe sunnan við Dresden.


SANY0208
SANY0212
 
Á veggjum hallarinnar mátti sjá hvenær mikil flóð höfðu komið í Elbe og hversu hátt vatnsyfirborðið náði. Síðasta stórflóð var um miðjan ágúst 2002.


Fljótabátarnir sem sigla á ánni eru glæsilegir farkostir. Þá er líka eftirtektarvert hversu mjó áin er miðað við þegar komið erð er til Hamborgar.


SANY0215
SANY0216
 
Framhluti hallarinnar í Pillnitz.


Í flóðinu 2002 náði vatnsyfirborðið sem nemur bogununum á neðstu hæð hússins.


SANY0217
SANY0226
 
MK - skvísurnar njóta ferðarinnar upp til Dresden.


Glæsileg bygging á bökkum Elbe.


SANY0235
SANY0237
 
Rétt áður en lagst var að bryggju blöstu stórkostlegar byggingar við hvar sem er. Hvelfingin í miðjunni tilheyrir Frauenkirche sem er nýbúið að gera upp.


Frúarkirkjan eyðilagðist að stærstum hluta í stríðinu en hefur nú verið endurbyggð. Dökku steinarnir sem sjást á myndinni eru úr rústunum. Ekki náðist að skoða kirkjuna í þetta skiptið því hún var lokið almenningi vegna tónleika.


SANY0239
SANY0240
 
Þessi gæi skipti Dresden miklu máli á 18. öld. Sá heitir Augusts II og var stóreignamaður og einnig mikið kvennagull. Víða mátti sjá minnst á hann í borginni.


Óperuhúsið í Dresden - stórglæsileg bygging. Ekki spillti fyrir að þarna var boðið upp á "trabba-safarí".


SANY0241
SANY0244
 
Í trabbasafarí er hægt að keyra trabant með tilheyrandi hávaða og óþef og hafa leiðsögumann sé við hlið. Og það voru margir sem vildu skoða borgina á þennan veg.


Hann er óneitanlega glæsilegur þessi - ekki satt?


SANY0245
SANY0248
 
Leiðsögukonan okkar í Dresden - hér stödd í Zwinger-garðinum sem var hugsaður sem samastaður Dresdenbúa fyrir útisamkomur.


Martin Luther steyptur á styttu fyrir framan Frúarkirkjuna.


SANY0251
SANY0252
 
Flottar byggingar - Frúarkirkjan gnæfir yfir í baksýn enda engin smásmíði.


Þessi reyndi að stælar Augustus II og græða pening á því.


SANY0253
SANY0263
 
Staðfesting á því að hafa komið til Dresden - Hofkirche og Elbe í baksýn. Myndin er tekin í Ráðhústurninum.


Þessi mynd sýnir vel hversu mikil mengun var í borginni. Sumar byggingar eru enn nánast svartar af sóti.


SANY0266
SANY0269
 
Svona leit Dresden út eftir stríðið.


Þessi mynd var eiginlega tekin fyrir Hafdísi Láru sem dáir einhyrninga. Glæsilegt götulistaverk fyrir framan Hofkirche.


SANY0271
SANY0275
 
Flottur garður rétt hjá óperunni.


Bílaumferðin virtist ekki hafa áhrif á hestana en þar voru greinilega bændur að koma með uppskeru í hús.


SANY0276
SANY0289
 
Þennan dag voru Þjóðverjar og Svíar að spila á HM. Alltaf þegar leikir voru í gangi safnaðist fólk saman fyrir framan risaskjái til að fylgjast með. Stemmingin var frábær þegar Þjóðverjar voru að spila ekki síst þegar þeir skoruðu.


Um kvöldið var borðað í víngarði kenndum við Schiller.


SANY0291
SANY0292
 
Eftir leik Þjóðverja og Svía keyrðu innfæddir um götur bæjarins með tilheyrandi hávaða og flauti.


Þessi stúlka sem nefnist Anna bjó í sömu íbúð á stúdentagarðinum í Leipzig.


SANY0296