Eftir námskeiðið í Leipzig skildu leiðir. Sumir fóru beint heim, aðrir lögðust í ferðalög og svo voru það sex kennarar sem ákváðu að fara til Berlínar og dvelja þar í tvær nætur. Kosturinn við það ferðalag að þá var hægt að fljúga beint heim á þriðjudeginum. Þó það hafi verið heitt í Leipzig var enn heitara í Berlín. Við létum það þó ekki aftra okkur í að skoða borgina, stundum öll saman en einnig líka ein. Þó við höfum einungis haft einn og hálfan dag til að skoða borgina þá dugði sá tími til að heillast af henni. Ég fer þangað aftur mjög fljótlega og þá væri ekki verra að hafa fjölskylduna með !
Eftir að hafa komið farangrinum á hótelið var ákveðið að fara í skoðunarferð um borgina. Fyrir valinu varð að fara í bátsferð og sigla um síki sem liggja um alla borgina. Á leiðinni í bátinn gengum við fram hjá höllinni í Charlottenburg.
Komin í bátinn - hitinn var yfir 35 gráður.
Berlínarbúar lágu eins og hráviðri á "grænum svæðum" - flestir fáklæddir og nutu veðurblíðunnar
Nýja aðalbrautarstöðin - þetta er stórglæsileg bygging. Ég vildi þó ekki vinna við að þrífa allt glerið ;-).
Restar af Berlínarmúrnum sem eitt sinn skipti borginni í tvennt.
Þjóðverjar vilja eyða mörgum ummerkjum um þá tíma þegar landinu var skipt í tvennt. Það á þó ekki við um götuljósin. Mér fannst þeir svo sætir með hattana.
Eins gott að strunsa af stað þegar þessi sýndi sig.
Þessi kirkja eyðilagðsist í stríðinu og var ákveðið að endurbyggja hana ekki. Hún skyldi vera minnisvarði um afleiðingar stríðsins. Við hlið gömlu kirkjunnar var reist nýtískuleg kirkja.
Sigursúlan í Berlín var reist til að minnast sigurs Þjóðverja á Dönum á seinni hluta 19. aldar.
Svæðið frá sigursúlunni niður að Brandenborgarhliði er kallað "Fanmeile". Þetta er ríflega tveggja og hálfs kílómetra breiðgata. Þarna hittast Þjóðverjar gjarnan þegar þeir fagna einhverju. Svæðið var afgirt á meðan á WM stóð og jafnvel leitað á fólki áður en það fór þarna inn. Þarna voru fótboltaleikir sýndir á risaskjám. Að sjálfsögðu þrufti að staðfestingu á því að hafa komið þarna.
Þarna mátti m.a. sjá sandlistaverk.
Þýskir fótboltaþjálfarar þrykktir í sandinn.
Ég var að hugsa um að færa Einari einn svona skjá en hefði sennilega þurft að hafa skjáinn utanhúss.
Vel fylgst með svæðinu. Í baksýn er þinghúsið í Berlín.
Er ekki skylda að láta taka mynd af sér við Brandenborgarhliðið?
Inni í fótboltanum var safn - að sjálfsögðu voru sýndir þar gripir tengdir fólbolta.
"Unter den Linden" er ein þekktasta gata í Berlín. Á torgi sem vísar að götunni mátti sjá þetta bangsasafn sem tengdist löndum heimsins. Ísland átti þó ekki fulltrúa hér. Spurning hvaða kort listamennirnir notuðu?
Kannist þið við einhver nöfn?
Dómkirjan í Berlín - glæsileg bæði að innan og utan.
Við hlið þessarar kirkju virðist sjónvarpsturninn ekkert svo stór.
Þegar upp í turninn er komið virðast hlutir og byggingar þó agnarsmáir. Hægt er að komast í rúmlega 200 metra hæð upp í turninum og útsýni yfir borgina er óviðjafnanlegt.
Sums staðar mátti sjá að heilu hverfin höfðu verið rifin en greinilega átti að endurbyggja allt.
Hús, götur og síki svo langt sem augað eygir - enda búa rúmlega þrjár og hálf milljón í borginni. Engin furða þó hún sé stór.
Heimsklukkan sýnir tímann um víða veröld.
Hannes og Ingis voru staðráðnir í að kaupa útbúnað sem hæfir þýskukennurum. En vanda þurfti valið.
Hópurnn á leið á Fanmeile til að horfa á leik. Á leiðinni þangað gengum við framhjá sendiráði Norðurlandanna. Verð að segja að það er dálítið skrítið hús og ef ég man rétt kostaði það líka einhver ósköp.
Ég er viss um að þeir slá í gegn í FSU þegar þeir mæta svona í kennsluna.
Já það var ekki leiðinlegt að upplifa fótboltastemminguna. Ingis, Sigurborg, Kristín og svo ég með húfuna góðum sem gerði lífið bærilegra í hitanum.
Komin í ferðafötin - og mætt á flugvöllinn sem er varla mikið stærri en flugstöðin okkar hér eystra.