Seinni hluta júni var haldið námskeið fyrir þýskukennara í Leipzig í Þýskalandi. Það voru alls 14 kennarar sem tóku þátt í námskeiðinu og komu þeir víðsvegar af landinu. Auk þess að vera á viku námskeiði í Leipzig var farið í skoðunarferð til Dresden. Í lok fór hluti hópsins til Berlínar og dvaldi þar í tvo daga áður en flogið var heim.
Þetta var góð og lærdómsrík ferð sem tókst í alla staði vel. Eina sem hægt er að kvarta yfir er hitinn sem var flesta dagana.
|
| |
|
|
| Hluti hópsins flaug til Londin að morgni 18. júní. Þar þurfti svo að bíða allan daginn eftir flugi til Leipzig. Við vorum ekki komin þangað fyrr en undir miðnætti. Deginum eyddum við m.a. í litlu þorpi rétt hjá flugvellinum. |
|
|
|
|
|
|
|
Námskeiðið byrjaði strax morguninn eftir. Það voru þær Anke og Anette sem stjórnuðu námskeiðinu af mikilli röggsemi. Að sjálfsögðu kom fótboltinn þar við sögu enda heimsmeistaramótið í fullum gangi.
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Til að kynnast Leipzig var m.a. farið í siglingu á síkjum og skurðum. Í slíkum skoðunarferðum er ætíð margt að sjá. |
|
|
|
|
|
|
Þó allmörg ár séu liðin frá falli múrsins hefur ekki enn tekist að endurbyggja allt í gamla DDR. Oft má sjá heilu húsin sem eru í niðurníslu. Í Leipzig eru í dag um 55.000 tómar íbúðir og á eftir að endurbæta þær flestar. Þegar múrinn féll 1989 var fólk frjálst ferða sinna og þúsundum samam fóru Austur-Þjóðverjar til vesturs í leit að betri lífsgæðum. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Við má sjá minnisvarða sem segja frá hörumungum stríðsins. |
|
|
|
|
|
|
|
Ráðhúsið í Leipzig er óneitanlega falleg bygging.
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Einn daginn fór hluti hópsins í heimsókn til hverfasamtaka í borginni. Þar komumst við m.a. að því hverju íbúar geta komið til leiðar með því að vera virkir og meðvitaðir um sitt nánasta umhverfi. |
|
|
|
|
|
|
Fótboltavöllurinn í Leipzig. Þar voru spilaðir tveir leikir í WM þá daga sem við stöldruðum við. Það var greinilega mikil öryggisgæsla alla dagana en þó áberandi meiri þá dagana sem leikir voru í borginni. .
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Til að hægt væri að kynnast sem flestu í borginni var stundum unnið í smærri hópum eða þeir sendir á mismunandi staði. Síðan þurfti að útskýra fyrir hinum hvað hafði verið gert. Hér er heimsókn til hverfasamtakanna gerð skil. |
|
|
|
|
|
|
Allir vildu fara á Stazi safnið en þangað komust bara fimm. Það voru ótrúlegar sögur sem komu þaðan eins og til dæmis um lyktarprufurnar sem voru teknar af fólki og geymdar.
|
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Einn hópurinn setti meira að segja á svið leikrit. |
|
|
|
|
|
|
| Einn daginn gerði mikið þrumuveður. Á örskömmum tíma varð nærri dimmt og regnið steyptist niður. Þó úti væri yfir 30 stiga hita mátti vel greina haglkorn í regninu. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Það fór ekkert á milli mála að allt snerist um fótbolta og yfirstandandi heimsmeistaramót. Þessi myndarlegi bolti var fyrir framan lestarstöðina í Leipzig. |
|
|
|
|
|
|
| Fótboltamál er nokkurs konar alheimsmál. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Einn daginn fórum við upp í hæsta hús í Leipzig. Þaðan sást svo langt sem mistrið leyfði. Þar á meðal var þetta raforkuver sem var knúið af brúnkolum. Þokkaleg mengun sem stafar af þessu. |
|
|
|
|
|
|
| Góðhjartaður samkennari tók þessa mynda af frúnni. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Eitt kvöldið borðaði hópurinn saman á bjórgarði á "Bayerischer Plazt". Frá vinstri: Magga, Veska, Sigrún, Anette, Anke og Kristín. |
|
|
|
|
|
|
Hjördís, Valgerður, Sigurborg, Hannes og Ingis. Ætli hinir hafi ekki verið að horfa á fótbolta ;-) |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Einn daginn fórum við í heimsókn til MDR sem er með aðalstöðvar sínar í Leipzig. Það var mjög skemmtileg heimsókn þar sem margt bar fyrir augu. |
|
|
|
|
|
|
| Við fórum upp á efstu hæð í aðalbyggingunni. Hér er horft í átt il miðborgarinnar. Hæsta húsið í borginni sést (þar sem við höfðum komið deginum áður) og eins hvernig verið er að endurbyggja lestarkerfi. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Aðal fréttastúdíóið - Kristín og Ágústa athuga hvernig þær taka sig út. |
|
|
|
|
|
|
| Á annað hundrað ljós voru í loftinu. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Hægt var að láta taka mynda af sér "með" þekktum leikurum (sjá litla skjáinn). Hér leikur Ingis sjúkling. Já það er nú ýmislegt hægt með tölvutækninni. |
|
|
|
|
|
|
| Hannes ákvað að spreyta sig á fréttamennskunni. |
|
|
 |
|
|
| |
|
|
| Anke og Anette fara yfir liðna daga og vilja vita hvernig til tókst. |
|
|
|
|
|
|
Þetta er stærsti sílófónn sem ég hef séð. Kallinn spilaði frábærlega á hann. |
|
|
 |
|