Aðra helgina í nóvember brugðu hjónakornin sér til stórborgarinnar Glasgow. Afkvæmið var skilið eftir í sveitinni. Þetta var í alla staði vel lukkuð verð. Veðrið var þokkalegt, mikið var skoðað af búðum og ölið var ágætt.
DCP_1332
 
Allt var orðið vel skreytt þó enn væru margar vikur til jóla.


Þessi skógardís var í einni "kringlunni" og hún spjallaði við gesti og gangandi.


DCP_1334
DCP_1333
 
Þetta eru óneitanlega fallegar skreytingar.


Glasgow er byggð í hæðóttu landi og hér sést vel hversu sumar göturnar eru brattar.


DCP_1348
DCP_1346
 
Það er mikil umferð í stórri borg og oft er mikið af brúm og akgreinum, jafnvel á mörgum "hæðum". Eitthvað myndu nú Íslendingar segja ef þeir þyrftu að byggja svona.


Áin "River Clyde" skiptir borginni í tvennt.


DCP_1341
DCP_1352
 
Margar glæsilegar byggingar eru í borginni.


Torgið George Square er í hjarta borgarinnar.


DCP_1338
DCP_1336
 
Við fórum í smá "túristaleik" og brugðum okkur í skoðunarferð um borgina.


Mjög margir Glasgowbúar búa í blokkum sem þessum.


DCP_1342
DCP_1359
 
Á laugardeginum var landsleikum milli Skota og Hollendinga og fengum við að upplifa ekta fótboltastemmingu.


Áhangendur Skota brugðu sér í skoðunarferð og virtust skemmta sér hið besta.


DCP_1367
DCP_1366
 
Strætóar og aftur strætóar - litlir og stórir.


Það var ekki hægt að sleppa því að mynda þennan sem vildi fá aur fyrir tiltækið.


DCP_1362
DCP_1358
 
Horft niður eftir aðal verslunargötunni.


Frúin hálf þreytulega á leið heim - enda löng leið fyrir höndum.
DCP_1369