Í lok maí var haldið í langþráð frí til Fuerteventura sem er ein Kanaríeyjanna. Þar dvöldum við í hálfan mánuð og höfðum það mjög gott. Lágum í sólinni, sulluðum í sjó og sundlaugum, fórum oft út að borða og höfðum það alveg frábært. Já, myndirnar tala sínu máli. Það er alveg bráðnauðsynlegt að fara í svona letifrí. Þá verður líka svo gott að koma heim.
DCP_3606
 
Það sést langar leiðir að Einar er farinn að hlakka til - hér bíður hann spenntur í Leifsstöð eftir því að fara út í flugvélina.


Íverustaður okkar á norðurhluta eyjunnar í bænum Corraleja - Oasis Tamarindo - íbúð 36 B.


SANY0038
SANY0039
 
Þetta er nýlegt íbúðahótel með um 140 íbúðum. Athugið að grasbletturinn er annar tveggja sem við sáum á eyjunni.


Eins og sést er gróðurinn fremur lágvaxinn og pálmatrén hálf berangursleg.


SANY0043
SANY0041
 
Horft yfir sundlaugargarðinn. Þar lágum við oft í leti.


Þarna voru líka bananatré en aldrei prófuðum við bananana.


SANY0044
DCP_3694
 
Við sátum iðulega úti þegar við borðuðum.


Hafdísi Láru fannst frábært í teygjuhoppinu.


DCP_3704
DCP_3610
 
Áð á aðalgötunni í Correlejo.


Við höfðum bílaleigubíl í tvo daga og keyrðum þá mikið um. Hér er eitt af mörgum geitabúum á eyjunni en það var okkur hulin ráðgáta hvað geiturnar ætu. Alla veganna var ekki mikið um gróður


DCP_3712
DCP_3720
 
Það tilheyrir að fara i dýragarð - hér fengum við að handfjatla krókódíl - sem betur fer var kjafturinn á honum límdur saman.


Kyrkislangan virtist bara kunna sæmilega við okkur - það var samt ágætt þegar hún var farin.


DCP_3721
SANY0032
 
Við fórum oft út að borða - á þessum kínverska veitingastað var mikið lagt upp úr því að maturinn væri flottur. Turninn atarna var útskorinn í gulrót.


Smábær á vesturströnd eyjunnar. Þarna voru m.a. gamlir varðturnar sem var gaman að skoða. Þeir voru notaðir til að verjast árásum frá Afríku fyrr á öldum. .


DCP_3739
DCP_3729
 
Þessi veggur hafði verið gerður til að vernda höfnina.


Sjómennirnir unnu á fullu þó slatti af túristum væri að þvælast þarna.


DCP_3734
DCP_3735
 
Aflinn leit vel út - sardínur og sumar jafnvel enn spriklandi.


Það verður að teljast nokkuð sérstakt skrautið í garðinum hjá þessum. Já það var heilt sjónæningjaskip - í fjarska virtist kapteinninn vera ekta en þegar nær var komið sást að þetta var tuskukall.


DCP_3744
DCP_3699
 
Við fjárfestum í þessu fína strandtjaldi - það var notað óspart - þó aðallega af Einari sem er ekki alveg jafn mikill sólardýrkandi og kvenpeningurinn.


Hér var Hafdís óþekk - nei smágrín- en henni fannst það fyndið að geta sig hverg hreyft.


DCP_3697
DCP_3748
 
Grafið eftir vatni.


Höfnin í Corralejo


SANY0028
SANY0021
 
Það var mikið af alls kyns bátum í höfninni. Best að stilla sér þar upp.


Sjórinn er ótrúlega tær og iðar af lífi.


SANY0024
SANY0025
 
Önnur uppstillingarmynd.


Ýmsar þekktar hetjur.


SANY0016
SANY0054
 
Að sjálfsögðu var seinkunn á fluginu heim - þá var nú gott að geta gripið í þrautabók til að drepa tímann.