haus141.jpg
Forsíđa
Vorönn 2013
Haustönn 2013
Námsframbođ
Innritun
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Nemendafélag FAS
FAS 25 ára
Vísindadagar
Ný námskrá
Nám til framtíđar
Vefpóstur | Inna fyrir kennara | Inna fyrir nemendur | Kennsluvefur | Fjarmenntaskólinn | Náttúrurannsóknir
Forsíđa
FAS - heilsueflandi framhaldsskóli
föstudagur, 17 maí 2013

thu_i_utivistNú er að ljúka öðru ári af fjórum í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli en FAS tekur þátt í því verkefni. Þar er aðaláherslan lögð á að forvarnir útfrá jákvæðu sjónarhorni og er helsta markmiðið að stuðla að vellíðan og auknum árangri hjá bæði nemendum og starfsfólki.
Á þessu skólaári hefur áhersla verið lögð á hreyfingu. Takmarkið í vetur er að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar og hefur ýmis konar átaki verið hrundið af stað í þeim tilgangi að fá fólk til að hreyfa sig.
Undanfarin tvö ár hefur Sandra Björg verið í forsvari fyrir Heilsueflandi framhaldsskóla. Hér getur að líta samantekt um starfsemi heilsuskólans í FAS. 

Lok vorannar
fimmtudagur, 16 maí 2013
Dönskupróf - 16. maí. Í dag eru síðustu skriflegu prófin í FAS á þessari önn. Undanfarna daga hafa kennarar unnið að því að fara yfir próf og gefa einkunnir. Allar einkunnir eru settar í Innu um leið og þær eur tilbúnar.
Þriðjudaginn 21. maí er hægt að skoða prófin á milli 10 og 12. Nemendur eru hvattir til að koma og skoða prófin sín og sjá hvernig þeim gekk.
Laugardaginn 25. maí verða útskrifaðir stúdentar, nemendur í fjallamennskunámi, vélstjórar, félagsliðar og svo einn nemandi af starfsbraut. Athöfnin hefst klukkan 14 og verður í Nýheimum. Allir eru velkomnir og hvattir til að mæta.
Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is