|
föstudagur, 02 nóvember 2012 |
Vísindadagar 2012
Vísindadagar fara nú fram í fjórða sinn.
Á vísindadögum velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði og oft er
unnið á allt annan hátt en í hefðbundnu námi. Miðað er við að
vinnan á vísindadögum skiptist í þrennt. Fyrsta daginn, miðvikudag, er gögnum safnað. Næsta dag er
unnið úr gögnunum og svo þarf að miðla upplýsingum og niðurstöðum. Það er gert á föstudegi.
Miðlunin er af þrennum toga. Hvert verkefni hefur sína stofu þar sem
afraksturinn er sýndur og stendur sýningin yfir milli klukkan 12 og 14
föstudaginn 2. nóvember. Í föstudagshádegi Nýheima klukkan 12:20 kynna
hóparnir
það sem þeir hafa gert og loks má kynna sér það sem hóparnir tóku sér
fyrir hendur með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.
Sindri FC
|