haus14.jpg
Forsíđa
Vorönn 2013
Haustönn 2013
Námsframbođ
Innritun
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Nemendafélag FAS
FAS 25 ára
Vísindadagar
Ný námskrá
Nám til framtíđar
Vefpóstur | Inna fyrir kennara | Inna fyrir nemendur | Kennsluvefur | Fjarmenntaskólinn | Náttúrurannsóknir
Forsíđa arrow Haustönn 2013
Haustönn 2013 Print
ţriđjudagur, 14 maí 2013

Umsóknir um nám á haustönn 2013

Sótt er um skólavist á vef Menntagáttar, menntagatt.is. Á Menntagátt lýkur innritun 31. maí.

Einnig er hægt að sækja um nám á tilteknum brautum hér á vef skólans.

Nemendur sem nú stunda nám í FAS þurfa ekki að sækja um sérstaklega heldur dugir þeim að staðfesta námsval sitt hjá umsjónarkennara fyrir 9. apríl.

Fjallamennskunám

Skipulag námsins og einingar eru samkvæmt nýrri námskrá framhaldsskóla. Miðað er við að sérsviðið sé samfellt nám í eitt ár.

  • Fjallamennskunámi lýkur með öðru lokaprófi. Sérsvið námsins getur einnig verið hluti af framhaldsskólaprófi eða stúdentsprófi.
  • Sérsviðið skiptist í bóklegt nám, verklegt útinám, ferðir á eigin vegum og starfsþjálfun. Verklegt útinám með kennara fer fram í lotum á haustönn og fram í janúar en að auki er ein námslota í dymbilviku. Ferðir á eigin vegum hefjast á haustönn og þeim lýkur í apríl. Lokaferðin er í maí og starfsþjálfunin fer fram á tímabilinu júní til ágúst að loknu öðru námi.
  • Námið er hugsað sem fyrsta skref í fjallamennskunámi sem hægt verður að byggja ofan á með námi og þjálfun svo sem í starfandi fyrirtækjum eða í fjallamennskuskólum.
  • Námið nýtist sem sérsvið á kjörnámspraut til stúdentsprófs.
  • Bóklegar námslotur fara fram í FAS á haustönn og mögulegt er að taka það í fjarnámi.
  • Til þess að geta hafið nám á sérsviði brautarinnar þurfa nemendur að vera 18 ára og hafa lokið 30 einingum í framhaldsskóla; 25 einingum á 1. hæfniþrepi og 5 einingum í íslensku á 2. hæfniþrepi.
  • Hafi nemandi lokið sambærilegu námi eða reynslu af fjallaferðum getur hann óskað eftir mati á því.
  • Brautarlýsing fjallamennskunáms.
  • Búnaður í fjallamennskunámi.
  • Nánari upplýsingar um skipulag og námstilhögun fjallamennskunámsins.
  • Tekið er við umsóknum þar til skráningu í áfanga lýkur 26. ágúst.
  • Skráningargjald 6000 kr.
  • Kennsla hefst 21. ágúst.

    Sækja um
Fjallamennskunám í FAS - Kynningarmyndband
Fjallamennskunám í FAS - Aron
Fjallamennskunám í FAS - Halli
Fjallamennskunám í FAS - Margrét

Starfsnámsbrautir framhaldsskólanna á Austurlandi

  • FAS er í samstarfi við Menntaskólann á Egilsstöðum (ME) og Verkmenntaskóla Austurlands (VA) um framboð styttri brauta, svokallaðra starfsnámsbrauta.
  • Yfirleitt er um að ræða nám með fjarfundasniði og á kennsluvef en þetta fyrirkomulag býður upp á þann möguleika að stunda námið með vinnu í heimabyggð.
  • Nánari upplýsingar um þetta nám og umsóknarform eru á vef ME.

    nanariupplysingar
Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is