haus202.jpg
Forsíđa
Vorönn 2013
Haustönn 2013
Námsframbođ
Innritun
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Nemendafélag FAS
FAS 25 ára
Vísindadagar
Ný námskrá
Nám til framtíđar
Vefpóstur | Inna fyrir kennara | Inna fyrir nemendur | Kennsluvefur | Fjarmenntaskólinn | Náttúrurannsóknir
Forsíđa arrow Um skólann
Um skólann Print

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu starfar eftir lögum um framhaldsskóla númer 80 frá árinu 1996 og lýtur yfirstjórn menntamálaráðherra. Skólinn var stofnaður árið 1987 af ríkinu og sveitarfélögum í Austur-Skaftafellssýslu.

Skólinn fékk inni í húsi Nesjaskóla í Nesjahreppi og þar var hann fyrstu 15 árin en fluttist í Nýheima á Höfn í Hornafirði haustið 2002.

Hlutverk skólans er fyrst og fremst að bjóða upp á almennt bóknám en auk þess er lögð áhersla á starfsnám í samræmi við eftirspurn hverju sinni, fullorðinsfræðslu og símenntun.

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu er um 200 nemenda skóli. Í skólanum er lögð áhersla á að þjóna þörfum nemenda á persónulegan hátt með sveigjanlegu námsframboði. Fjarnám og tölvutengt nám er mikilvægur hluti náms við skólann og fer sífellt vaxandi.

Skólinn er í samstarfi við aðra framhaldskóla á Austurlandi samkvæmt sérstökum samstarfssamningi. Markmið samningsins er fyrst og fremst að bæta aðgengi nemenda að eins fjölbreyttu námsframboði og kostur er og tryggja þeim sem bestan undirbúning undir frekara nám eða störf.

Framhaldsskólinn í Austur-Saftafellssýslu er aðili að Þekkingarneti Austurlands sem hefur það markmið að bæta aðgengi íbúa fjórðungsins að háskólanámi og símenntun.

Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is