haus31.jpg
Forsíđa
Haustönn 2010
Námsframbođ
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Innritun
Vefpóstur | Kennsluvefur | Inna fyrir nemendur | Inna fyrir kennara
Forsíđa arrow Námsframbođ arrow Fjarnám
Fjarnám Print

Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er hægt að stunda fjarnám með ýmsum hætti. Almennt er reynt að koma á móts við þarfir þeirra nemenda sem leita til skólans. Einnig hægt að semja sérstaklega um fyrirkomulag námsins.

Skipulag fjarnáms í skólanum er þó einkum með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða nám sem fer nær eingöngu fram á neti á kennsluvefnum (http://www.kennsluvefur.is/). Hins vegar er um að ræða nám sem er skipulagt í samstarfi við Menntaskólann á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands. Þá er um að ræða nám sem fer fram í gegnum myndfundabúnað og einnig er kennsluvefurinn notaður. Núna er hægt að stunda fjarnám á eftirtöldum sviðum við skólann:

Brautir til stúdentsprófs
Boðið er upp á nám á félagsfræðabraut, málabraut og náttúrufræðibraut og einnig viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi. Stóran hluta af áföngum á stúdentsprófsbrautum er hægt að taka á kennsluvefnum.

Í FAS er einkum boðið upp á fjarnám í kjarnaáföngum þriðja og fjórða námsárs og í kjörsviðsgreinum. Algengast er að fjarnemendur séu skráðir í sömu hópa og staðarnemendur og fylgi sömu kennsluáætlun og þeir. Námið er ekki skipulagt sérstaklega með þarfir fjarnemenda í huga og hentar því fjarnám í FAS betur nemendum sem hafa frumkvæði og góðan sjálfsaga. Áföngum sem skipulagðir eru sérstaklega sem fjarnámsáfangar fer þó fjölgandi.

Próf taka nemendur í lok annar eftir sömu próftöflu og nemendur á staðnum, en prófin geta fjarnemendur tekið í framhaldsskóla, símenntunarmiðstöð eða annars staðar í heimabyggð eftir því sem aðstæður leyfa. 

Skipstjórnarnám
Nám til A-stigs skipstjórnar býðst nú í fjarnámi. Námið veitir réttindi til að gegna stöðu skipstjóra eða stýrimanns á skipum sem eru styttri en 24 metrar að skráningarlengd og stöðu stýrimanns á skipum allt að 45 metrum að skráningarlengd. Kennt er í gegn um netið eða í staðbundnum u.þ.b. 20 klukkustunda lotum í Tækniskólanum. Námið hentar því nemendum um allt land. Námið hefst á haustönn 2009.

Skipulag námsins:

  • Nám til réttinda til að gegna stöðu skipstjóra eða stýrimanns á skipum sem eru styttri en 24 metrar að skráningarlengd og stöðu stýrimanns á skipum að 45 metrum að skráningarlengd
  • Réttindi fást að fullnægðum skilyrðum um siglingatíma og starfsþjálfun
  • Fyrra nám og reysla er skoðuð sérstaklega og metin til eininga ef við á
  • Kennslan fer fram í gegnum netið og í lotum
  • Nemendur þurfa að hafa aðgang að tölvu og netengingu
  • Nemendur þurfa að mæta í námslotur nema samið hafi verið um annað fyrirfram
  • Nemendur bera sjálfir kostað vegna ferðalaga í námslotur
  • Nemendur greiða skráningargjald sem er 4250 krónur fyrir hverja önn
  • Efnisgjald verður innheimt í þeim áföngum sem það á við
  • Námið er í samvinnu við Tækniskólann
  • Námið er vottað eftir alþjóðlegu vottunarkerfi Tækniskólans
  • Próf tekin í nálægum menntastofnunum
  • Áfanginn SLY101, slysavarnir, er ekki kenndur í FAS en hann er reglulega í boði á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og það er á ábyrgð hvers nemanda að taka hann
  • Áfanginn UTN103, upplýsingar og tölvur, verður skipulagður í samráði við nemendur

Smáskipa- og skemmtibátanám
Boðið upp á sérstakan námspakka til skipstjórnarréttinda á skipum sem eru allt að 12m að lengd og skemmtibátum allt að 24m að lengd. Námið er skipulagt sem fjarnám og unnið er á kennsluvefnum (http://www.kennsluvefur.is/). Í sumar verður unnið að því að endurskipuleggja námið í ljósi nýrrar námskrár sem gefin verður út á næstunni og verður því ekki hægt að sækja um það nám fyrr en í ágúst.

Próf fara fram í lok náms bæði haust og vor. Þau geta nemendur tekið í framhaldsskóla, símenntunarmiðstöð eða annars staðar í heimabyggð eftir því sem aðstæður leyfa.

Vélstjórnarnám
Nám til B-stigs vélstjórnar býðst nú í fjarnámi. Námið er ætlað þeim sem lokið hafa 2. stigi vélstjórnar og veitir réttindi á skip með allt að 1500 kW vélarstærð. Kennt er í gegn um netið eða í staðbundnum 20 klukkustunda lotum í Tækniskólanum. Námið hentar því nemendum um allt land. Námið hefst á vorönn 2009.

Skipulag námsins:

  • Námið veitir réttindi til starfa sem yfirvélstjóri og 1. vélstjóri á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og undirvélstjóri á skipum með 3000 kW vélarafl og minna að uppfylltum siglingatíma.
  • Námið er sniðið að þörfum þeirra sem lokið hafa 2. stigi vélstjórnar og ætla sér að ljúka B-stigi vélstjórnar. Þeir sem lokið hafa A-stigi vélstjórnar eða ætla sér eingöngu að taka einstaka áfanga geta þó komið inn í námið ef aðstæður leyfa.
  • Fyrra nám og reynsla er skoðuð sérstaklega og metin til eininga ef við á.
  • Kennslan fer fram í gegnum netið og í lotum.
  • Nemendur þurfa að hafa aðgang að nettengdri tölvu.
  • Nemendur þurfa að mæta í námslotur nema samið hafi verið um annað fyrirfram.
  • Nemendur bera sjálfir kostað vegna ferðalaga í námslotur.
  • Nemendur greiða skráningargjald sem er 4250 krónur fyrir hverja önn.
  • Efnisgjald verður innheimt í þeim áföngum sem það á við.
  • Námið er í samvinnu við Tækniskólann og aðra vélskóla víða um land.
  • Námið er vottað eftir alþjóðlegu vottunarkerfi Tækniskólans.
  • Símenntunarmiðstöðvar veita námsráðgjöf og aðstöðu til náms fyrir þá sem vilja eftir nánari samkomulagi við hverja miðstöð.
Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is