|
fimmtudagur, 16 maí 2013 |
Í dag eru síðustu skriflegu prófin í FAS á þessari önn. Undanfarna daga hafa kennarar unnið að því að fara yfir próf og gefa einkunnir. Allar einkunnir eru settar í Innu um leið og þær eur tilbúnar.
Þriðjudaginn 21. maí er hægt að skoða prófin á milli 10 og 12. Nemendur eru hvattir til að koma og skoða prófin sín og sjá hvernig þeim gekk.
Laugardaginn 25. maí verða útskrifaðir stúdentar, nemendur í fjallamennskunámi, vélstjórar, félagsliðar og svo einn nemandi af starfsbraut. Athöfnin hefst klukkan 14 og verður í Nýheimum. Allir eru velkomnir og hvattir til að mæta.
|