haus9.jpg
Forsíđa
Vorönn 2012
Námsframbođ
Innritun
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Vísindadagar
Vefpóstur | Kennsluvefur | Inna fyrir nemendur | Inna fyrir kennara
Forsíđa
Ţorrablót í FAS
föstudagur, 03 febrúar 2012
Þorramatur - hollur og  góður. Fyrsta þorrablót Nemendafélags FAS var haldið í gærkvöldi, fimmtudaginn annan febrúar og tókst það með eindæmum vel. Nemendur hittust í Nýheimum og snæddu þorramat frá Kaffihorninu. Minni karla og kvenna voru lesin ásamt því sem sungin voru lög sem tilheyra þorranum. Undirtektirnar voru mjög góðar og lék Sigurður Mar undir á mandólín sem verður þó að teljast óhefbundið en engu að síður stórskemmtilegt.
Eftir að kvöldverðinum lauk lá leiðin í Sindrabæ þar sem Dj Óli Geir lék fyrir dansi fram eftir nóttu. Eins og áður sagði tókst kvöldið í alla staði mjög vel og stóðu stelpurnar í skemmtinefnd Nemendafélagsins sig stórkostlega í allri skipulagningu og undirbúningi blótsins.
Gaman væri ef þessi viðburður festi sig í sessi og verði endurtekinn að ári og þá með þátttöku enn fleiri nemenda og starfsmanna FAS.
Vinir Vatnajökuls styrkja FAS
fimmtudagur, 02 febrúar 2012
Vinir Vatnajökuls. Um langt skeið hafa verið stundaðar ýmsar náttúrufarsrannsóknir í FAS. Þar má nefna jöklamælingar, rannsóknir á gróðurframvindu á Skeiðarársandi, álftatalningar í Lóni og fuglatalningar í Óslandi. Með tíð og tíma hafa safnast gögn og mæliniðurstöður. Sú umræða hefur komið nokkrum sinnum upp í FAS að gaman væri að gera þessar upplýsingar aðgengilegar fyrir almenning.
Í haust sótti skólinn um styrk til Vina Vatnajökuls til að vinna að þessu verkefni. Skólinn fékk styrk upp á hálfa milljón til að koma þessum gögnum á vef skólans. Um leið verða þessar upplýsingar aðgengilegar fyrir þá sem hafa áhuga.
Vinna við þetta verkefni er þegar hafin og stefnt er að því að verði lokið í júní. 
Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is